miðvikudagur, janúar 12, 2005
Ég og Freyr ætlum að byrja nýtt ár á nýrri sameiginlegri síðu, yfir til þín erlaogfreyr.blogspot.com
sunnudagur, janúar 09, 2005
Gleðilegt nýtt ár
Það var frábært á Kanaríeyjum og vil ég nota tækifærið og þakka Gúnda og Möggu og öllum fyrir yndislega ferð. Við gerðum margt skemmtilegt og borðuðum rosalega góðan mat enda bættust 3 kíló á kellinguna sem ég er ekki enn farin að vinna í:( maður er svo askoti latur......Það var rosalega gaman að vera þarna yfir jól og áramót og ég væri sko alveg til í að endurtaka það. Ég og Freyr keyptum okkur rosalega fína Digital vél Sony sem kostar 40 þús með 128mb korti en við fengum hana á sérstökum díl hjá Íslandsvinunum Harry á 25 þús...ekki slæmt það. Þannig að við ætlum að gera síðu þar sem við látum inn skemmtilegar myndir og skrifum kannski örfáar línur. Freyr ætlar að sjá um að setja hana upp þannig að þá er bara að bíða og sjá hvort hann geri það á þessu ári:) Ég mun þá hætta með þessa síðu. Sjáumst næst á sameiginlegri síðu Erlu og Freys...hún verður rosaleg.....

þriðjudagur, desember 14, 2004
Ólöf Erla er fædd
Á föstudaginn eignaðist systir mín og Siggi lítinn engil sem heitir Ólöf Erla. Það er ekki amalegt að fá litla frænku svona rétt fyrir jólin og ekki skemmir það að við berum báðar nafnið Erla. Fæðingin gekk frekar erfiðlega og það þurfti að taka sog og tangir á þetta en það hófst á endanum. Hún er svo sæt og róleg og yndisleg.........oooooooo þið verðið bara að sjá sjálf
Til hamingju Ása og Siggi og allir!!!

Já það er búið að vera mikið að gerast hjá mér. Ég er í prófum og á aðeins eitt eftir sem ég klára á fimmtudag. Það verður svo mikið húllumhæ um helgina, full dagskrá framundan og svo verður maður nú að klára þessar blessuðu jólagjafir áður en maður flýgur til Kanaríeyja. Það er vika í Kanarí og okkur hlakkar rosalega til að komast í smá sól og afslöppun. Ég efast um að ég skrifi eitthvað þangað til ég kem heim, ef einhver er að lesa þetta, jú kannski hún Rakel mín. Þannig að ég segji bara gleðileg jól og farsælt komandi ár og takk fyrir það liðna.
kveðja Erla
kveðja Erla
mánudagur, nóvember 22, 2004
Pabbi gamli klikkar ekki!!!
Ég kíkti í heimsókn til pabba gamla í Álftahólana en hann er nýfluttur þangað ásamt unnustu sinni henni Sigrúnu. Hann tók vel á móti okkur (Ása systir, ég og Siggi) og var meirasegja búin að taka til smá bakkelsi. Mér var litið á þessar kræsingar og fannst eitthvað skrítið við lagkökuna og þorði ekki alveg að smakka á henni. Sigga fannst hún hinsvegar svona rosalega girnileg og ætlaði að fá sér bita og sagði; uummmmm girnileg kaka og ég stoppaði hann og sagði; Siggi ég held að þetta sé ekki kaka, mjög skrítin lykt af henni.
Sú var raunin, þetta var lasagna sem pabbi tók út úr frystinum, ætlaði að vera voða myndó og góður við okkur...........og hélt að þetta væri lagkaka hehehehehe

miðvikudagur, nóvember 17, 2004
Það gerðist doldið vandræðalegt fyrir mig um daginn....svo mikið sé sagt
Ég var í fyrirlestrartíma með c.a 100 öðrum. Þessi fyrirlestur var vægast sagt hundleiðinlegur og ég ákvað að læðast hljóðlega af honum. Það eina sem ég þurfti að gera var að stíga upp eina tröppu og taka nokkur skref og þá var ég komin út. Það var ekki svo auðvelt fyrir mig og þessi lúmskulega brottför mín endaði á gólfinu og síðan á veggnum. Það má með sanni segja að þetta hafi ekki gengið hljóðalaust fyrir sig því allur salurinn sneri sér úr hálslið til að líta mig augum. Ég er rétt svo núna að losna við roðann sem braust út í andliti mínu og enn heyri ég......bíddu varst það þú sem dast í skriðu......hehehehehe

laugardagur, október 30, 2004
jæja á maður ekki bara að fara að hætta þessu.........
Allavega taka smá pásu, þangað til ég og Freyr kaupum 0kkur digital vél. Vorum að pæla í að stofna svona hjónakornasíðu og þá getum við sett inn myndir svo hún Rakel mín geti nú fylgst með en á meðan segji ég bara bless, verið hress og ekkert stress!!!

föstudagur, september 03, 2004
Ég sit hérna á bókasafni Kennaraháskóla Íslands og pikka þessi orð mín inn á eldgamla háværa fartölvu sem að hún móðir mín ljáðist að gefa mér. Allt í kringum mig eru nemendur skólans að soga í sig fróðleik meðan að ég er búin að vera að vafra um á netinu og gera allt annað en að líta í bók. Engu að síður líst mér mjög vel á það sem framundan er, og hef ég það á tilfinningunni að vinur minn Ölvar verði mér til halds og trausts í vetur.